21maí

Er að fara í sveitasæluna :)

Jæja þá er enn og aftur langt síðan seinast.... Seinustu vikur hafa verið frekar litríkar en er allt að komast í rétt horf aftur. Það var komin mikil uppgjöf í mig fyrir um tveim vikum og var það eina sem ég hugsaði um að fá smá frí frá þessum hugsunum og þessu líferni. En núna er allt komið á betri veg og fer uppköstum fækkandi með hverri vikunni sem er nátturlega bara frábært. Sú hugsun að lifa í þessu lengur er mér einhvernveginn orðin ómöguleg. Langar ekki að eyða sumrinu í það að hugsa um það hvað ég er að borða og plana hvernig ég á að losa mig við það. S.s. löngunin í það að lifa “eðlilegu” lífi er orðin mjög mikil hjá mér og hjálpar það manni auðvitað mikið að sjá að þetta er hægt á þeim mörgu stelpum sem ég hef kynnst. Eins og ég segi oft við eina vinkonu mína sem hefur verið með þennan sjúkdóm að ég get ekki beðið eftir að vera komin á sama stað og hún er í lífinu. En auðvitað kostar það mikla vinnu, þekkingu og stjórnun á sjálfri sér og finn ég að það er allt að koma hægt og rólega. T.d er ég búin að vera að vinna mikið í því seinustu vikur að fækka uppköstum og er sú aðferð sem þær láta mig gera upp á deild mjög hjálpleg. Og er það að fresta uppköstum, t.d. þegar ég er búin að borða og líður illa að þá reyni ég að telja sjálfri mér trú um það að kannski horfa á einn þátt áður en ég kasta upp og svo þegar það er búið að þá kannski fara og fá mér eina sígó áður en ég geri það o.s.frv. þangað til sú tilfinning um það að vera full af mat er horfin. Og eins og áður sagði þá hefur þetta gengið mjöl vel hjá mér en auðvitað er þetta ekki bara það eitt, auðvitað er ég farin að þekkja betur hvað ég þoli betur en annað t.d hvaða mat ég er ekki að farast yfir að borða, að fara ekki í sturtu í kringum matartíma hvorki fyrir né eftir(helst bara á morgnanna áður en ég borða e-ð) og margt þessu líkt. En lífið upp á deild gengur sinn vanagang og eru stelpurnar þar alveg yndislegar, maður tengist náttúrulega sumum betur en öðrum en það er bara eins og gengur og gerist. En ég er komin í frí frá dagdeildinni út þessa viku þar sem ég ætla að fara að slappa af í sveitinni með Nínu minni fram að helgi, eða hún slappar kannski ekki mikið af þar sem það er sauðburður og e-ð svoleiðis dót... ég á nú sjálf sagt bara eftir að standa þarna og þvælast fyrir J en við ætlum nú líka að vera duglegar að fara á hestbak og svona kósý heitJ Ég kem nú með fréttir af því næstJ En svo fullnægði maður aðeins íþróttagenunum í sér í vikunni þegar við staffið á Oliver fórum í blak niðrí Nauthólsvík og var það geggjað gaman og n.b. þá vann mitt lið báða leikina sem við spiluðum, við staffið í eldhúsinu á Oliver og staffið á Vegamótum J Enda eru strengir dauðans í gangi hérna megin núnaJ En ég ætla að fara að koma mér upp í sveit. En langar samt enn og afur að þakka öllum þeim sem eru að commenta hérna og fylgjast  með síðunni minni J Og takk fyrir allt addð á msn þið sem hafið valið að gera það. Og vonandi fer umræðan um þetta í samfélaginu að verða jákvæðari og hjálplegri.Kv. Telma Ýr sveitastelpa Jmsn: telmaunn@hotmail.com
21. maí 2008 klukkan 15:45
Telma Ýr Unnsteinsdóttir
22 athugasemdir
28apríl

Dagdeildin...

Jæja .... stuttu eftir að ég var búin að setja síðustu færslu inn fékk ég símhringingu um að ég væri komin inn á dagdeildinnia og byrjaði ég þar á mánudaginn seinasta. Hugsa að það sé bara jákvætt þar sem mér er hrósað þar alveg í bak og fyrir að hafa hætt á lyfjunum mínum bara svona ein og sér og að ég sé alltaf að setja mér markmið sjálf þó ég sé enn bara í aðlögun Hlæjandi Þarf lítið til að gleðja mann.Svalur . En á dagdeildinni er búið að ganga bara ágætlega, auðvitað eru sumir dagar erfiðari en aðrir en það sem léttir erfiðu daganna um helming er það að allir þarna upp á deild skilja að þeir eru erfiðir þó svo að það sé bara e-ð smá sem er að gera hann erfiðann, t.d erfiður matur. Það hugsa nú samt örugglega flestir sem lesa þetta hvað flokkast undir erfiðann mat og skilja ekkert hvað er erfitt við það að borða J En í mínu tilviki finnst mér mjög erfitt að borða mat sem mér finnst mjög góður og hvað þá ef hann er frekar fitandi í leiðinni því þá borða ég yfirleitt alltaf þannig að ég þurfi að æla. Sú tilfinning hjá mér að vera södd er einhvernveginn ekki alveg til staðar orðið og hefur sjálfsagt ekki verið lengi, þess vegna fæ ég bara mikla þörf oft fyrir það að æla og verð mjög dösuð og slöpp eftir mat þar sem hausinn er yfirleitt á miklum yfirsnúning í þessum aðstæðum. Upp á deild er nátturlega hugsað fyrir þessu öllu og er bara matnum skammtað þar... þá hvorki kemst ég upp með það að borða of lítið né of mikið og hugsa ég að með þessu eigi ég líka svolítið eftir að læra á söddu og svöngu tilfinningarnar mínar aftur. En annars er bara ágætt að frétta nema það að ég hef verið svolítið vör við neikvæða umræðu í minn garð um þennan sjúkdóm og fleira sem mér finnst miður þar sem það augljóslega sínir að fólk veit ekki alveg hvað það er að tala um þegar það er að tala um að ég hafi tapað mér og misst vitið o.s.frv. auðvitað kannski hef ég gert það en finnst þetta ekki alveg sanngjarnt tal þar sem þessi sjúkdómur nátturlega hefur haft yfirhöndina á mér í þó nokkur ár þó svo ég hafi kannski verið “óvirk” í einhver tvö til þrjú ár á þessum 5 árum, en ég náði botninum að ég held alveg seinansta árið, án þess kannski að ég sé að fela mig e-ð á bak við þennan sjúkdóm þá finnst mér samt fólk svolítið þurfa að vita hvað það er að tala um áður en það fer að tjá sig um þessa hluti við vini og vandamenn. En allir meiga hafa sína skoðun á þessu máli og vona ég bara og veit að einhvertímann verði þetta tímabil í lífi mínu búið og ég verði reynslunni ríkari. Og verð ég að segja að þau comment sem eru sett hérna inn hjálpa mér mikið og veit ég að það eru margir að lesa þessa síðu sem þurfa kannski á einhverri hjálp við þetta og vona ég bara að opnari umræður um þennan sjúkdóm auðveldi fólki það.             En eins og ég áður sagði þá er ég bara á dagdeildinni alla daga núna og er því hætt í skólanum enn einusinni. Þumalína er flutt að heiman eftir frekar mikið ósætti okkar á milli Saklaus og er hún núna bara hjá Kolbrúnu og co.En vona að allir hafi það nú sem allra best.LoveloveTelma Ýr
28. apríl 2008 klukkan 22:28
Telma Ýr Unnsteinsdóttir
32 athugasemdir
17apríl

Hafnafjörðurinn er æði :)

Jæja þá er mjög langt síðan seinast.... og getið þið nú kannski gefið ykkur það að þegar ég er ekki að skrifa þá eru hlutirnir ekkert að ganga allt of vel.  Seinustu þrjár vikurnar hafa verið misgáfulegar og mataræði eftir því. Ég er ennþá að bíða eftir því að komast á dagdeildina og getur það tekð einhverja mánuði í viðbót sem er frekar sorglegt. Ég þarf líka að vera hætt á öllum lyfjum og öðru sem hafa verið að deyfa mig í gegnum þetta og hafa seinustu vikur því ekki verið mjög auðveldar. En hins vegar er alveg ótrúlegt að finna fyrir því allt í einu hvað er gott að bara gráta þegar manni líður illa... ekki deyfa þetta með einhverjum hætti t.d með lyfjum eða uppköstum og fá svo tremma kast á endanum. En ég er búin að taka svona aðal lyfið mitt út og er þaðer bara ótrúleg stórt skref á litlum tíma og líka búið að kosta sitt.... búin að vera í frekar miklu fráhvarfi með öllu tilheyrandi .. en eftir 1 og ½ viku án þess fór ég nú heldur betur að finna fyrir því hvað þetta var erfitt að sofa nánast ekkert nema á svefntöflum og þegar maður svaf þá vaknar maður í svita kasti og var líka einhvernveginn upptjúnnuð með skjálfta o.fl. allann daginn. En núna er það nú yfirstaðið og er það þá svefntöflurnar næst sem ég þarf alveg að hætta með og verður það nú vonandi ekkert erfitt þar sem ég er farin nota þær bara í algjörri neið, ef ég hef ekki náð mér almennilega niður í einhverja sólahringa... og svo eitt enn lyf og þá er þetta allt á góðri leið.. verð nú vonandi komin e-ð áfram í þessu loksins þegar ég fæ inn á göngudeildina. En annars er voða lítið að frétta, Oliver búið að opna aftur eftir breytingar og fólk nú aðeins farið að láta sjá sig þar afturJ Ég er byrjuð í skólanum tvo daga á stofudögum (mánud. Og fim) og er það fínt að komast í það að gera einnhverjar meðferðir aftur. En ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili... frekar að skrifa bara fljótt aftur =) XoxoTÝU***
17. apríl 2008 klukkan 14:34
Telma Ýr Unnsteinsdóttir
12 athugasemdir
21mars

Veður blíða úti :)

Þá er stelpan komin á klakann og saknar útlandsins mjög. Reyndar er hún elsku Kolbrún mín komin til mín hingað á klakann þannig að djammið heldur bara áfram Svalur

En ég kom semsagt á laugardeginum fyrir viku eftir snildar viðkomu í Köben. Það var geggjað gaman þar nema hvað stelpurnar voru ekki alveg að meta áfengið þar jafn mikið og ég. Þannig að stelpan kynntist bara þessum yndælis náungum frá Frakklandi og Víetnam sem voru að spila á einhverjum bar sem við vorum á og djammaði með þeim það sem eftir ferðarinnar þar sem stelpurnar fundi fyrir e-i aukinni þörf fyrir að sofa þarna í kaupmannahöfnJ HAUGAR J Hitti einmitt Eydísi frænku þar eitt kvöldið og dróg hana með mér og strákunum á e-ð pöbbarölt eftir að þeir voru búnir að spila. Ekkert smá gaman að hitta hana þar sem það er slatti langt síðan seinastJ En annars er vikan bara búin að ganga sinn vanagang. Fæ reyndar ekki að byrja á dagdeildinni fyrr en eftir páska og hún Áslaug mín sem er alltaf með mig upp á göngudeild er að hætta og á ég eftir að sakna hennar alveg gríðalega og verða það örugglega mikil viðbrigði þar sem hún nær rosa vel til mín og er hún kannki svona einamanneskjan sem hefur almennilega náð að troða ofan í mann einhverju viti Saklaus. En ég er að byrja hjá einverri nýrri þarna sem er vonandi bara alveg jafn yndisleg og hún Brosandi Gamla settið er í heimsókn hjá mér yfir páskana og amma Dótó var hérna líka en fór í dag. Það er búið að vera svo mikið að gera hjá mér að ég hef ekkert almennilega náð að setjast niður og láta vita hvað er að frétta, talvan líka búin að vera í ruglinu! En ég verð dugleg að því núna og er líka búin að setja inn myndir á myspace e-ð frá norge og bústaðaferðinni sem við snyrtipjollurnar fórum í áður en ég fór út.  En veriði nú duglega að skrifa, er farin að heyra að fólk héða og þaðan eru að kíkja hérna inn Hlæjandi

Gleðilega Páska allir og njótiði þess að borðaGlottandi Ég reyni að gera slíkt hið sama Svalur

 
21. mars 2008 klukkan 12:39
Telma Ýr Unnsteinsdóttir
14 athugasemdir
03mars

norge norge ....

Nuna er stelpan komin til norge og verdid tid tvi ad afsaka ad eg hef enga islenska stafi herna a tølvunniÓákveðinn 
En tad er nu kannski svolitil astæda fyrir tvi ad eg hef ekki skrifad svolitid lengi tar sem hlutirnir hafa ekki alveg gengid eins og teir eiga ag gera. Akvad tvi med stuttum fyrirvara ad skella mer herna i sæluna til Kolbrunar, Davids og Ørnu adur en eg færi til Køben med skvisunum minum. Eg hef litid nad ad halda utan um matarædid seinustu vikur og er tad annadhvort allt of mikid sem eg er ad borda og fæ ta samviskubit eda allt of litid sem endar med tvi ad eg verdi annadhvort alveg buin a tvi eda fæ atkast. En tetta tekur allt saman bara tima og tolinmædi.
Godu frettirnar eru samt tær ad eg er buin ad akveda tad ad samtykkja ad fara a dagdeildina og fæ eg dagsetningu a tad tegar eg kem heim hvenar eg byrja tar og verdur tad vonandi sem fyrst svo eg skipti ekki um skodun Skömmustulegur En a dagdeildinni mætum vid ta alltaf i morgunmat a milli 8 og 9 og svo turfum vid lika ad borda tar hadegismat og svo er ymis frædsla og tesshattar lika med. En astædan fyrir tvi ad eg hef ekki enn farid a tessa deild er tad ad eg treysti mer ekki til ad geta bordad bara tad sem er sett fyrir framan mig tar sem eg er einnig mjøg matvønd svo ad .... en tarna eru alltaf tveir rettir einn grænmetis og einn einhverskonar kjøt/fiskur svo ad vonandi a eg eftir ad geta komid e-u af tessu alltaf nidur.

En ja svo er nu margt annad buid ad vera i gangi tar sem elsku besti bekkurinn minn var ad klara skolann og fylgja tvi mikil sorg hja mer tar sem eg veit ekki alveg hvernig eg a ad getad byrjad nyja ønn an teirra og teirra studnings Gráta En audvitad samgledst eg teim mjøg og Oska teim her med øllum innilega til hamingju med tennan afanga !!!!!Koss Og audvitad fylgja tvi alltaf sma fagnadarstundir tegar svona afanga er nad og var tvi farid i eina goda sumarbustadaferd a midvikudaginn eftir profin hja teim og var tad hrikalega gamanGlottandi svo er tad "utskriftaferdin" tar sem vid nokkrar stelpur ur bekknum minum ætlum ad fara til køben. Stelpurnar fara tangad a morgun en eg er ekki alveg akvedin i tvi hvenar eg ætla yfir.

En svo er tad hedan ur norge.. eg kom hingad a føstudaginn og var seinkun ur keflavik tannig ad eg nadi ekki fluginu til haugasund tannig ad eg sat bara a arnum i oslo og drakk a kostnad einhverst oliukarls fra Texas :) Svo a laugardaginn komst eg loksins til haugasund og sottuu Kolbrun, Arna og Tinna mig og keyrdum vid hingad til Økre tar sem tau eiga heima. Svo um kvældid skelltum vid okkur nidur i haugasund aftur a sma næturlif Saklaus sem var mjog gaman og aldrei ad vita nema eg hendi inn nokkrum myndum af tvi i kvøld :)
En svo i dag er stefnan aftur tekin a haugasund i sma menningarferdSaklaus 

En tetta er ordid tokkalega langt og verd eg nu lika ad fara ad leika mer vid greyid Lukas (hundinn teirra) tar sem Tara haugur er ekki vøknud.
Kvedja fra Norge Koss
03. mars 2008 klukkan 08:50
Telma Ýr Unnsteinsdóttir
12 athugasemdir
20febrúar

Þá er enn ein helgin búin..

Þá er enn ein helgin búin og stendur hattaparyið klárlega uppúr:) þetta var ekkert smá fyndið allt saman, Ragga stóð sig eins og hetja í drykkjum kvöldsins og Tinnar var nú einnig alveg að standa sig í kræsingum og skrauti;) Takk fyrir frábært kvöld elskurnar mínar, þó svo ég sé leiðinleg í bænum að stinga alltaf af  en ég er klárlega farin að vinna í því Svalur
En seinsutu dagar hafa þó ekki gengið neitt voðalega vel. Fór í fræðslu upp á deild í gæs og var maður svolítið skömmustulegur þegar maður labbaði þaðan út þar sem var mikið talað um hvað við þyrftum af vítamínum og öðru þess háttarÓákveðinn en alltaf er maður að kynnast nýju fólki þarna og það er hvert annað almennilegra Koss 
Annars er lítið að frétta annað en vinna og ræktin. Ég hugsa að ég tali ekkert um fótbolt fyrr en þá kannski á morgun þegar mínir menn eru búnir að sanna það að þeir séu ekki sömu drulluhalarnir og þeir voru á laugardaginn!!
 En það er eitt sem ég vil endilega koma á áfram hérna þar sem nokkrar stelpur eru búnar að hafa samband við mig eftir að ég fór að tala um þetta hérna á síðunni minni og ef það er einhver sem er að lesa síðuna mína sem vantar e-ð að tala um átraskanir eða spyrja eða e-ð þá endilega hafiði samband við mig t.d. er msnið mitt telmaunn@hotmail.com og mailið mitt líka:) Endilega látið í ykkur heyra því leið og þetta er komið í umræðu hjá ykkur verður þetta mun auðveldara og þá sjáið þið  að þetta er ekki eðlilegt  að hugsa svona Koss

En elskurnar mínar fara nú að verða búnar í prófum og get ég ekki beðið þar sem þær eru búnar að vera frekar leiðinlegar seinustu tvær vikurnar Svalur  Og vá hvað mig hlakkar til að fara í sumarbústaðaferðina á miðvikudaginn næsta með þessum elskum til að fagna að prófin séu búin. haha ég er klárlega líka að gera það þar sem það er búið að vera mikil pressa á mér í lærdómnum seinustu vikur er alveg búin að vera með þeim samt að læra sko þegar þær eru að æfa nuddið og svona á mér fyrir próf Saklaus 
Get samt einhvernveginn ekki hugsað mér að vera án bekksins míns í skólanum á næstu önn. það verður mjög skrítið Gráta
En nóg af þessum gráti núna vona bara að einhver falli til að vera með mér þegar ég byrja aftur... hehe neinei vona að ykkur gangi öllum voða vel elskurnar mínar Koss

Endilega látið í ykkur heyra
lovelove
20. febrúar 2008 klukkan 01:26
Telma Ýr Unnsteinsdóttir
4 athugasemdir
15febrúar

átti nú ekki að vera svona langt í þennan!!

Jæja núna er ég alveg við það að fara að skipta um símafyrirtæki!!! Helv.... Síminn sá til þess að ég er búin að vera netlaus í 3 daga þar sem Pálmi var að fá sér nr heim til sín, nei þá ákváðu þeir bara að loka mínum síma!!! búin að lesa einhverjum aumingja mönnum þarna á símanum pistilinn núna á hverjum degi núna í 3 daga. Starfsfólkið þarna er örugglega farið að tala um mig sem brjáluðu kellinguna sem kemst ekki af án þess að vera með netið. HíhíSaklaus

En allavega þá hefur þessi vika ekkert verið rosalega jákvæð í sambandi við mín mál. Fór reyndar til Áslaugar upp í teymi í vikunni og það er nátturlega bara yndislegt hún er ekki eðlilega yndisleg sú manneskja Koss og svo var það náttúrlega atferlisnámskeiðið í gær sem er mjög fínt... en þrátt fyrir það hefur þetta ekki verið alveg nógu jákvætt og í seinustuviiku En samt sem áður allt á uppleið :)

En svo er það nú bara vinna í kvöld eins og svo mörg önnur kvöld:) og svo er það svaka djamm  á okkur austanskvísum á laugardaginn. Hlakka ekkert smá til að taka smá trylling með Röggu, Tinnu og co :) Heh það er sko mikið búið að leggja í þetta party heyrist mér, búið að vera að sækja gömul góð lög sem minna mann nátturlega bara á fjörðinn fagra og kannski svolítið spjall við hana Röggu mína á Irkinu(hvernig svo sem þetta var skrifað) Hahahahahaha. Allavega skilst mér það að Spice Girls og önnur topp bönd haldi upp stemmingunni í þessu partyi langt fram á nótt:) Svo má nú ekki gleyma þemanu sem eru hattar og þessvegna auglýsi ég hér með eftir bleikum hatti, verður klárlega að vera MJÖG töff:) einhver sem á?? Mig klárlega vantar Oxfordstreet núna :)

En allavega veriði jafn dugleg að láta vita af ykkur núna eins og síðast:)

X.O.X.O
Gossip Girl :)
15. febrúar 2008 klukkan 11:18
Telma Ýr Unnsteinsdóttir
7 athugasemdir
11febrúar

Þá er kominn tími til að byrja aftur:)

Jæja ég er nú búin að lofast til að byrja með þessa elsku bestu síðu mína aftur.Og þá er líka eins gott að fólk sé duglegt að láta heyra í sér og þá sérstaklega austan liðið mitt:)
En það eru nú örugglega flestir sem lesa þessa síðu að pæla í því hvernig ég hef það og verð ég nú bara að segja stolt frá því að ég er öll að verða betri:) Er náttúrlega alltaf upp á deild þar sem er yndislegt fólk og er einnig byrjuð á einhverju atferlisnámskeiði þar sem er líka alveg yndislegt fólk pínu svona AA stemming fannst mér fyrst þegar ég fór þangað en þetta er svo bara alveg yndislegur hópur sem ég er í:) Stelpan er semsagt bar öll að koma til... Ekki búin að fara í ræktina alveg í tvær vikur eða e-ð. Sem hljómar mjög undalega sjálfsagt fyrir suma að segja að maður sé duglegur með það. en þannig er lífið;) Svo er ég líka byrjuð að vinna á Oliver svona með þar sem ég er búin að vera í veikindafríi frá skólanum mínum og talandi um að ég sé farin að umgangast yndislegt fólk þá er það allavega yndislegasta fólkið :) var einmitt að farða þau öll um helgina þar sem það voru brasilískir dagar þar... og getiði nú skoð myndir af því á myspacinu mínu;) set þær inn í dag eða á morgun;)
Ég er náttúrlega alveg óð á nýju myndavélinni minni núna þar sem Pálmi gaf mér myndavél þegar hann kom heim úr landsliðsferðinni :) fallega gert af stráknum:) Þannig að núna get ég tekið myndir á fullu af allt og öllu;) Á nú reyndar eftir að sakna Williams myndavélarinnar mikið þar sem það er ekkert svona töff kappaksturshljóð í þessari;) híhí
en hugsa að þetta sé gott í bili.. lofa að vera dugleg núna að henda einhverju hérna inn... þar sem ég hef líka lítið annað að gera þessa þaganna;)
Lovelove
TÝU


11. febrúar 2008 klukkan 16:16
Telma Ýr Unnsteinsdóttir
13 athugasemdir
16desember

Jæja þá ....

Jæja .. alltaf er maður jafn duglegur hérna ..verð eiginlega að gera bara svona punkta um allt sem er búið að gerast .. 
* Stelpan er komin heim á klakann ..
* Sakna nú London soltið
* var ömurlegt að kveðja alal ... eins og einn vinur minn sagði .. skrítið að kveðja mig því ég er að fara e-ð í rassgat en þau búa flest í Brasilíu og geta alltaf hist.
* Kuldinn hérna er vangefinn!!!
* Pálmi elskan hélt "surprise" afmæli fyrir mig þegar ég koma heim .. fattaði það samt strax Svalur En afsakið þið sem hann bauð ekki .. hann bauð eiginlega bara vinum sínum Svalur og fótoltaliðinu mína ... veriði fúl við hann ekki mig Hlæjandi Þessi elska..
* Þreytan var samt gríðaleg þetta kvöld þannig að þegar allir fóru út þá fórum við bara heim strax aftur .. Var soltið þreytt eftir Kveðju djammið kvöldið áður í London =)
* en j svo er stelpan bara búin að vera í Hríseynni í viku... Er alltaf að skilja Pálma elskuna mína eftir einn heima Skömmustulegur En verð nú að segja að hann er líka frekar leiðinlegur þessa dagana... alltaf að læra svo ég efast um að hann taki eftir því Hlæjandi
* Kom samt til rkv í gær yfir helgina bara ... er að fara í endajaxlatöku á mánudaginn, á að taka þrjá úr mér í einu Fýldur ætla svo að fara aftur til mömmu og pabba að láta þau stjana við mig Hlæjandi
* Mér hlakkar svo til þegar Pálmi er búinn í prófum að hanga með honum allan daginn og gera ekki neitt Hlæjandi

En allavega þá er þetta svona ágætis update
Verð dugleg núna .. hef ekkert annað að gera Hlæjandi
Lovelove
16. desember 2006 klukkan 17:59
Telma Ýr Unnsteinsdóttir
12 athugasemdir
22nóvember

Netleysi í London

Jæja nú er ég alveg komin með temmilega nóg af host fjölskyldunni minni..... PIRR!!!! Núna er það að við drekkum of mikla mjolk þannig að hún skaffar okkur, 5 stelpum, 6 LITRA á viku ... n.b. hun kaupir ekkert að drekka með kvoldmatnum.... þannig að ef við þurfum meira en þetta þá verðum við námsmennirnir bara að kaupa okkar sjálfar.... HÁLVITAR!!!!!!! og svo eru þau ekki ennþá búin að drullast til að græja netið .. búin að segja það í 6 vikur að það sé á leiðinni og ljúga öllum anskotanum í okkur!!!! HÁLVITAR!!!!!

En ja úff það er langt síðan ég hef skrifað hingað .. það er host fjölskyldunni minni að kenna=) ... ég er alveg búin að gefast upp á að taka tölvuna með mér í skolann þar sem ég er örugglega á góðri leið með að fá góða hrygg skekkjuSkömmustulegur aðeins lengra i skolann hér og aðeins meria labb en heima=) þetta er óþolandi ... kemst því aldrei á netið og eins og núna er ég hérna í einhverjum stiga .. því það er hvergi aðstæða til að setjast niður hérna .. eða sú litla sem er er alltaf full.... þannig að ég er að drepast í rassgatinu akkúrat núna=)

En já .... Edinborg ... var nú ekki búin að segja ykkur frá því .. það var Frábært .. get ekki annað sagt .. nema við erum að ræða brjálæðislegan kulda þar=) en mér heyrist að það sé allt á kafi heima núna þannig að ..  en ja það var geggjað .. Pálmi elskan var svo elskulegur að setja inn myndir fyrir mig þannig að skoðið .. eru fleiri á einhverri annari síðu en man bara ekki hvar .. verð að spurja pálma að því=)
En já .. hann var líka hjá mér í síðustu viku og það var æði... fórum meðal annars á Arsenal - Liverpool .. sem ég held að margir vilji að ég tali ekkert um .... Hlæjandi híhí .. það var geggjað=) og svo bauð Eggert okkur líka á Chelsea - West Ham og það var líka geggjað .. vorum bara eins og kóngur og drottning þarna Svalur SNILD!!
En ja .. við fórum líka í London eye .. held samt að Pálmi vilji ekkert að ég tali um það þar sem hann þorði ekki að standa upp Hlæjandi 
En allavega ja þá er fint að frétta úr London nema það að Luiza og Cladia eru farnar heim Fýldur En ég er að koma heim á laugardaginn... Dömur spurning um að gera e-ð um helgina eðaSvalur

Allavega er að deyja í rassgatinu hérna ...
Hafið það gott...
Lovelove
22. nóvember 2006 klukkan 21:15
Telma Ýr Unnsteinsdóttir
9 athugasemdir

Aðalvalmynd

Leit

Auglýsing

Myspace